Áfram nú.

 

Eftir glæsilegar sveitarstjórnar kosningar og stórgott prófkjör, hefur allur sjarmi hrunið af Fálkaflokknum í Suðurkjördæmi.  Flokkurinn mælist nú einungis með 30,4% samkvæmt skoðana könnuninni sem unnin var fyrri Stöð 2 og Vinstri G á blússandi siglingu með 17,6 % frá 5 % í síðustu kosningu.  Ekki er það afrekaleysið í landsmálunum eða í sveitastjórnum sem er að draga fylgið af flokknum eins og Eyþór Arnalds bendir á í sínu bloggi.  Ég verð því að ítreka hvatningaorð mín til frambjóðenda að spýta í lófana og herða róðurinn, því við eigum inni allt að 40 % fylgi ef miðað er við Sveitarstjórnarkosningarnar í fyrra.

 

 

Að sjálfsögðu vil ég meina að ef flokksfélagar mínir hefðu ekki hafnað mér síðastliðið haust þá væri staðan önnur!

 

 

Kæru félagar um allt Suðurkjördæmi blásið í lúðra því nú verður baráttan að fara hefjast.


mbl.is Stóraukið fylgi VG í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Niðurstaðan í prófkjörinu í haust var skandall - þeir ættu að rifja upp málsháttinn ,,engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur".

Páll Jóhannesson, 12.4.2007 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband