3.2.2009 | 14:00
Mýsnar gæta kornhlöðunnar
Nú er sú staða uppi að mýsnar eru farnar að gæta kornhlöðu ríkisins. Ögmundur stendur varðstöðu fyrir umbjóðendur sína í BSRB (ekki okkur hina), Jóhanna tryggir aðgang öryrkja og þeirra sem aldrei borga skatta til ríkisins og Steingrímur tryggir að vegir brýr og Jarðgöng nái fram að ganga á Norðvestur horninu (gott fyrir vini mína á Vopnafirði).
Hvernig á þá að bæta á í kornhlöðunni svo mýsnar verði ekki magrar, það verður erfitt en ef allir eru magrir þá verða verða mýsnar hlutfallslega feitar.
Er það ekki þetta sem menn kalla kommúnisma?
Hvorki valdboð né komugjöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Líklega er það kallað það en það væri hægt að kalla þennann hluta hanns líka jafnaðarstefnu og mannkærleika sem er mun fallegra en minning þess sem flestir tengja við kommúnisma.
Johann Trast Palmason, 3.2.2009 kl. 14:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.